Reykjavík, 4. október 2023: InstaVolt, brautryðjandi í hraðhleðslustöðvum, hefur opnað aðra hraðhleðslustöð sína á Íslandi.

Garðyrkjustöðin Friðheimar hefur nú gangsett fjögur sérlega hraðvirk 160 kW hleðslutæki við þennan geysivinsæla ferðamannastað sem er algengur viðkomustaður þegar Gullni hringurinn er farinn. Friðheimar eru í aðeins 20 mínútna fjarlægð frá Gullfossi og 30 mínútur frá hinum heimsfrægu goshverum í Haukadal.

Hleðslustöðvarnar við veitingastað Friðheima verða knúnar með 100% endurnýjanlegri orku.

Þetta kemur í kjölfar einstaklega vel heppnaðrar opnunar á stærstu hleðslustöð landsins í júní við Courtyard by Marriott hótelið sem er í einungis fimm mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli.

InstaVolt, sem er þekkt fyrir áreiðanleika og er auðvelt í notkun þar sem hægt er að greiða með snertilausum debet- eða kreditkortum, er með áætlanir um að setja upp 200 stöðvar á Íslandi á næstu tveimur árum.

Adrian Pike, stjórnarformaður InstaVolt, segir: „Við hjá InstaVolt erum stolt af því að hafa opnað aðra hleðslustöð á Íslandi.

„Þetta var einstakt tækifæri til að taka þátt í því að skapa innviði fyrir hraðhleðslu á Íslandi. Þetta hafði í för með sér umtalsverða fjárfestingu af hálfu InstaVolt og hefur leitt af sér einstakt samstarf þar sem 100% endurnýjanleg orka verður notuð til að knýja rafmagnsbíla á Íslandi. Við hlökkum til að bæta við fleiri hleðslustöðvum vítt og breitt um landið.“

Þessi nýjasta hleðslustöð er mikilvæg í stærra samhengi þar sem Ísland leitast við að ná fram markmiðum sínum um að banna skráningu nýrra bensín- og dísilökutækja árið 2030. Um leið er verið að vinna að hleðsluneti rafknúinna ökutækja, bæði fyrir íbúa landsins og ferðafólk, sem er hvatt til þess að ferðast á sjálfbæran hátt um landið.