Reykholt, 20. mars 2024: InstaVolt, brautryðjandi í hraðhleðslustöðvum, hefur opnað þriðju hraðhleðslustöð sína á Íslandi.

Tvær ofurhraðhleðslustöðvar, knúnar með 100% endurnýjanlegri orku frá HS Orku, verða opnaðar við þjónustustöð N1 í Reykholti, við hlið verslunarinnar Bjarnabúð, í grennd við Reykholt sem er þekkt fyrir sögu sína og menningu.

Þetta kemur í kjölfar góðs árangurs InstaVolt undanfarið á Íslandi. InstaVolt opnaði stærstu hleðslustöð landsins, með 20 hleðslutækjum, í júní 2023 við Courtyard by Marriott-hótelið sem er í einungis fimm mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli og tók undir lok síðasta árs í gagnið fjórar ofurhraðhleðslustöðvar við gróðurhúsin í Friðheimum.

InstaVolt, sem er þekkt fyrir áreiðanleika og er auðvelt í notkun þar sem hægt er að greiða með snertilausum debet- eða kreditkortum, er með áætlanir um að setja upp 300 stöðvar á Íslandi á næstu tveimur árum, þar af á fimm stöðum í viðbót fyrir sumarið.

Adrian Pike, stjórnarformaður InstaVolt, segir: „Við erum að gera áreiðanlega hraðhleðslu ökutækja aðgengilegri á Íslandi.

Þetta var einstakt tækifæri til að taka þátt í því að skapa innviði fyrir hraðhleðslu á Íslandi. Þetta hafði í för með sér umtalsverða fjárfestingu af hálfu InstaVolt og hefur leitt af sér einstakt samstarf þar sem 100% endurnýjanleg orka verður notuð til að knýja rafmagnsbíla á Íslandi. Við hlökkum til að bæta við fleiri hleðslustöðvum vítt og breitt um landið.“

Þessi nýjasta hleðslustöð er mikilvæg í stærra samhengi þar sem Ísland leitast við að ná fram markmiðum sínum um að banna skráningu nýrra bensín- og dísilökutækja árið 2030. Um leið er verið að vinna að hleðsluneti rafknúinna ökutækja, bæði fyrir íbúa landsins og ferðafólk, sem er hvatt til þess að ferðast á sjálfbæran hátt um landið.